(+354) 591 0100Símanúmer
sart@si.isNetfang
Borgartún 35Staðsetning

Verkfæraapp

Verkfæraappið Veistu hvar

Öll fyrirtæki inna Samtaka rafverktaka, SART, hafa gjaldfrjálsan aðgang að verkfæraappinu Veistu hvar.

Veistu hvar er einfalt og notendavænt verkfæraapp sem veitir fyrirtækjum nákvæma yfirsýn yfir öll sín verkfæri og auðveldar alla umsýslu verkfæra.

Starfsmenn geta með einföldum hætti skráð á sig verkfæri með því að skanna QR kóða verkfæris eða skrá það innan appsins. Þegar starfsmaður skráir á sig verkfæri, skráir hann einnig í hvaða verkefni hann ætlar að nota verkfærið ásamt því að skrá staðsetningu verkefnisins.

Stjórnendur fyrirtækja sjá í rauntíma hverjir eru með hvaða verkfæri, í hvaða verkefni verkfærin eru í notkun og hvar þau eru staðsett hverju sinni. Stjórnendur hafa einnig aðgang að nákvæmri notkunarsögu allra verkfæra og starfsmanna.

Kennslumyndbönd og frekari upplýsinga er að finna á mínum síðum SART.

Image
Image


Samtök rafverktaka
Borgartún 35, 105 Reykjavík
Sími 591 0100
Fax 591 0101
Kt. 420269-0729
sart@si.is

Sterkari saman

Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu hagsmunasamtök atvinnurekenda á Íslandi.

Öryggi - Fagmennska

Merki samtakanna eru skrásett vörumerki og eru trygging fyrir fagmennsku, öryggi og traustum viðskiptaháttum.