(+354) 591 0100Símanúmer
sart@si.isNetfang
Borgartún 35Staðsetning

Fréttir

Kaffiklíkan í Múlakaffi

Kaffiklíkan er hress hópur rafvirkjameistara sem hittist í Múlakaffi flesta miðvikudagsmorgna.

Framkvæmdastjóri Sart hitti kaffiklíkuna í dag og höfðu menn frá mörgu að segja. Farið var um víðan völl og  meðal annars rætt um öryggismál rafiðnaðarmanna, jafnréttis- mennta- og réttindamál voru einnig krufin til mergjar á milli þess sem sagðar voru sögur og brandarar úr bransanum.

 

Svo skemmtilega vildi til að myndasmiður var á staðnum og á myndinni sem tekin var af hópnum má sjá í efri röð f.h. Kristján D. Sigurbergsson, framkvæmdastjóra Sart, Pál Kristinsson Rafspor,  Eyjólf Björgmundsson Rafrós, Guðjón Guðmundsson og í neðri röð eru Ísak Lárusson Ljósver, Guðmundur Jóhannsson, Jón Jónsson Dyrasímar raflagnir, Helgi Kolsøe Ljósafoss, Baldur Hannesson og Guðbrandur Benediktsson.


Samtök rafverktaka
Borgartún 35, 105 Reykjavík
Sími 591 0100
Fax 591 0101
Kt. 420269-0729
sart@si.is

Sterkari saman

Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu hagsmunasamtök atvinnurekenda á Íslandi.

Öryggi - Fagmennska

Merki samtakanna eru skrásett vörumerki og eru trygging fyrir fagmennsku, öryggi og traustum viðskiptaháttum.