(+354) 591 0100Símanúmer
sart@si.isNetfang
Borgartún 35Staðsetning

Fréttir

Krefjandi vetur fram undan – félagsfundur um starfsmannamál

Krefjandi vetur fram undan – félagsfundur um starfsmannamál

Þrengt hefur að húsbyggjendum og öðrum fyrirtækjum í mannvirkjagreinum og margir verktakar horfa fram á krefjandi vetur. Við slíkar aðstæður geta vaknað fjölmargar spurningar um starfsmannamál, réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
Meistaradeild Samtaka iðnaðarins, í samstarfi við vinnumarkaðssvið Samtaka atvinnulífsins (SA), boðar því til lokaðs fundar fyrir félagsmenn þar sem farið verður yfir helstu atriði sem stjórnendur og atvinnurekendur þurfa að hafa í huga þegar kemur að starfsmannamálum.
Réttindi, skyldur og hagnýt úrlausnarefni
Á fundinum verður sérstaklega fjallað um réttindi og skyldur vinnuveitenda og launþega og farið yfir álitaefni sem kunna að koma upp þegar breytingar verða á verkefnastöðu og rekstri fyrirtækja.
Markmiðið er að veita félagsmönnum hagnýtar upplýsingar sem nýtast við ákvarðanatöku og meðferð starfsmannamála. Þátttakendum gefst jafnframt tækifæri til að bera fram spurningar og fá svör við atriðum sem tengjast efni fundarins.
Fundurinn verður lokaður félagsmönnum en einnig verður hægt að fylgjast með honum í streymi.
Með fundinum vilja Meistaradeildin, SI og SA styðja fyrirtæki í mannvirkjagreinum við að takast á við krefjandi rekstrarumhverfi og stuðla að því að breytingar á vinnustöðum séu undirbúnar og framkvæmdar með faglegum hætti.


Samtök rafverktaka
Borgartún 35, 105 Reykjavík
Sími 591 0100
Fax 591 0101
Kt. 420269-0729
sart@si.is

Sterkari saman

Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu hagsmunasamtök atvinnurekenda á Íslandi.

Öryggi - Fagmennska

Merki samtakanna eru skrásett vörumerki og eru trygging fyrir fagmennsku, öryggi og traustum viðskiptaháttum.