(+354) 591 0100Símanúmer
sart@si.isNetfang
Borgartún 35Staðsetning

Fréttir

RAFMENNT, fræðslusetur rafiðnaðarins

Í ársbyrjun ákváðu stjórnir Rafiðnaðarskólans og Fræðsluskrifstofunnar að auka formlegt samstarf milli félaganna undir heitinu RAFMENNT, fræðslusetur rafiðnaðarins.


Nú hefur Þór Pálsson verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá RAFMENNT. Þór starfaði síðast sem aðstoðarskólameistari Tækniskólans, skóla atvinnulífsins, og þar áður sem áfangastjóri Iðnskólans í Hafnafirði í tólf ár. Hann er með meistarapróf í kennslufræði með áherslu á stjórnun (MEd). Auk þess er hann með sveinspróf í vélvirkjun, C réttindi í vélstjórn og iðnmeistari í rennismíði.

Hann hefur setið í stjórn Verkiðnar og verið í framkvæmdastjórn Íslandmóts iðn- og verkgreina, setið í starfsgreinaráði og verið frumkvöðull í þróun iðnmenntunar undanfarin ár. Þór hefur störf í aprílmánuði og bjóðum við hann velkominn til starfa.

 Í kjölfar skipulagsbreytinganna hefur verið gerður starfslokasamningur við Stefán Sveinsson, skólastjóra Rafiðnaðarskólans, og hefur hann þegar látið af störfum. Stefáni eru þökkuð góð störf í þágu skólans.


Samtök rafverktaka
Borgartún 35, 105 Reykjavík
Sími 591 0100
Fax 591 0101
Kt. 420269-0729
sart@si.is

Sterkari saman

Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu hagsmunasamtök atvinnurekenda á Íslandi.

Öryggi - Fagmennska

Merki samtakanna eru skrásett vörumerki og eru trygging fyrir fagmennsku, öryggi og traustum viðskiptaháttum.