(+354) 591 0100Símanúmer
sart@si.isNetfang
Borgartún 35Staðsetning

Fréttir

Rafverktakar héldu upp á 90 ára afmæli FLR í Perlunni

Félag löggiltra rafverktaka, FLR, sem er aðildarfélag SART/SI, hélt upp á 90 ára afmæli sitt fyrir skömmu en FLR var stofnað í mars 1927. Afmælishátíðin sem var haldin í Perlunni fór vel fram.

Tekið var á móti gestum á 5. hæð í Perlunni og síðan farið í 20 manna hópum undir leiðsögn á sýninguna Jöklar og íshellar sem er á tveimur hæðum í einum af 6 geymum Perlunnar. Þar birtast jöklarnir, saga þeirra og framtíð og gestir fengu tækifæri til að ganga í gegnum 100 metra langan íshelli eða jökulgöng. Að jökulgöngunni lokinni var standandi veisla með fjölda rétta úr hráefni frá íslenskum framleiðendum.

Sjá nánar á vef SI


Samtök rafverktaka
Borgartún 35, 105 Reykjavík
Sími 591 0100
Fax 591 0101
Kt. 420269-0729
sart@si.is

Sterkari saman

Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu hagsmunasamtök atvinnurekenda á Íslandi.

Öryggi - Fagmennska

Merki samtakanna eru skrásett vörumerki og eru trygging fyrir fagmennsku, öryggi og traustum viðskiptaháttum.